Hár grefur hendur,
Á hálsi er falinn koss.
Með vörum ég leita hans lengi
En þá rennur það upp fyrir mér,
Að sennilega verð ég
Að kyssa þig einusinni til,
Því kossar veita hlýju og hlýja veitir yl.
Og það var bara ég...
Ylur vermir hjarta
Og hjarta vermir blóð
Og blóðið það blæs lífi
Í lostans nautna glóð.
Hár grefur hendur
Á hálsi er falinn koss.
Með vörum ég leita hans lengi
En þá rennur það upp fyrir mér.
Og það var bara ég...
A strong comment here is specific: the phrase you keep hearing, the mood you come back for, or the reason this song stays in rotation.
Sign in to post the first listener note. Reporting stays open to everyone.