ÞÚ, haf! Sem ber tímans og harmanna farg
þÚ hugraun mér vekur
Í hjarta mér innst, þá þú brýzt um við bjarg
þAð bergmála tekur
ÞInn niður er hryggur, þinn hljómur er sár
Pú hrellir svo muna
Sem brimdropinn hver væri beiskasta tár
Hvert báruhljóð stuna
Og dimmur var ægir og dökk undir él
Var dynhamra-borgin
Og þá datt á náttmyrkrið þögult sem hel
Og þungt eins og sorgin
Við hafið eg sat fram á sævarbergs stall
Og sá út í drungann
þAr brimaldan stríða við ströndina svall
Og stundi svo þungan
A strong comment here is specific: the phrase you keep hearing, the mood you come back for, or the reason this song stays in rotation.
Sign in to post the first listener note. Reporting stays open to everyone.