ósamræmi, hugur minn á sveimi
úr takt við hugans rætur
fljótandi hugsanir, algleymi
umlukin myrkri í draumi
sveipuð djúpu húmi
augun tómu bláu
opna nýjan heim
að hugans hafi, gráu
ég breiði svarta vængi yfir
kafna í köldu myrkri
nóttin herðir fastar að
þar til ég missi andann
andvaka, ofin í endurteknar martraðir
heltekin af skjálfandi andnauð
drukknandi í endalausu draumkendu svartholi
andvaka martraða svartholi
nótt eftir nótt eftir nótt
þú sefur ekki
A strong comment here is specific: the phrase you keep hearing, the mood you come back for, or the reason this song stays in rotation.
Sign in to post the first listener note. Reporting stays open to everyone.